[Hvað er nýtt í Firefox] Núna er auðveldara og fljótara að gera það sem þú vilt gera í nýjasta Firefox. Með endurhönnuðu heimasíðunni færðu hraðara viðmót og getur farið beint í mest notuðu valmyndirnar. Eins og niðurhal, bókamerki, feril, viðbætur, sync og stillingar. [Síða fyrir nýjan flipa] Einnig er búið að endurbæta síðuna fyrir nýjan flipa. Með nýju flipa síðunni, geturðu auðveldlega farið með einum smelli á nýjustu og oftast heimsóttu vefsíðuna. Til að byrja að nota nýju flipasíðuna, búðu til nýjan flipa með því að smella á '+' efst í vafranum. Nýja flipasíðan birtir núna smámynd af nýjustu og oftast heimsóttu vefsíðunum út frá innslætti í staðsetningarslá. Þú getur sérsniðið nýju flipasíðuna með því að draga smámyndirnar til og frá og breyta þannig röðun. Smelltu á festihnappinn til að læsa vefsvæðinu, eða smelltu á 'X' hnappinn til að fjarlægja vefsvæði. Einnig er hægt að smella á grindina efst í hægra horninu til að fara til baka á tóma nýja flipa síðu. Náðu í nýjasta Firefox núna og byrjaðu að nota þessa nýju eiginleika!