[Hvað er nýtt í Firefox] Núna er auðveldara og fljótara að gera það sem þú vilt gera í nýjasta Firefox.
Með endurhönnuðu heimasíðunni færðu hraðara viðmót og getur farið beint í mest notuðu valmyndirnar.
Eins og niðurhal, bókamerki, feril, viðbætur, sync og stillingar.
[Síða fyrir nýjan flipa] Einnig er búið að endurbæta síðuna fyrir nýjan flipa.
Með nýju flipa síðunni, geturðu auðveldlega farið með einum smelli á nýjustu og oftast heimsóttu vefsíðuna.
Til að byrja að nota nýju flipasíðuna, búðu til nýjan flipa með því að smella á '+' efst í vafranum.
Nýja flipasíðan birtir núna smámynd af nýjustu og oftast heimsóttu vefsíðunum út frá innslætti í staðsetningarslá.
Þú getur sérsniðið nýju flipasíðuna með því að draga smámyndirnar til og frá og breyta þannig röðun.
Smelltu á festihnappinn til að læsa vefsvæðinu, eða smelltu á 'X' hnappinn til að fjarlægja vefsvæði.
Einnig er hægt að smella á grindina efst í hægra horninu til að fara til baka á tóma nýja flipa síðu.
Náðu í nýjasta Firefox núna og byrjaðu að nota þessa nýju eiginleika!