Margir komu og sögðu Jósafat
að stór her væri á leiðinni
til að heyja stríð gegn honum.
Óttasleginn vegna þessara frétta
lýsti Jósafat yfir föstu fyrir allt Júda.
Fólk kom hvaðanæva að í Júda
til að fasta og biðja saman.
Við vorum hluti af stórum hóp, og Jósafat
var í einlægni að biðja Guð um aðstoð.
Þá stóð upp maður að
nafni Jehasíel og sagði
að Jósafat ætti ekki
að vera áhyggjufullur —
því þetta væri ekki hans orrusta,
heldur Guðs.
Það var snemma að morgni
sem við fórum út í eyðimörkina Tekoa.
Við höfðum miklar áhyggjur
af því að mæta þessum mikla her,
en okkur var sagt að hafa trú.
Við báðum einnig.
Þegar könnunar flokkurinn
kom yfir hæðina,
sáum við aðeins lík
allt í kring.
Óvinurinn virðist hafa
snúist gegn sjálfum sér.
Bænir Jósafats höfðu
unnið orrustuna
án þess að til bardaga kæmi.